Ókeypis sending ef pöntun er yfir 9,500 kr
Ókeypis sending ef pöntun er yfir 9,500 kr
Karfa 0
Tígrisprinsinn eftir Chen Jiang Hong
Tígrisprinsinn eftir Chen Jiang Hong
Tígrisprinsinn eftir Chen Jiang Hong
Tígrisprinsinn eftir Chen Jiang Hong

Tígrisprinsinn eftir Chen Jiang Hong

Sale price 2.100 kr Regular price 2.900 kr

Inni í frumskógi veinar tígrismóðirin, full af sorg og hatri. Veiðimenn skutu hvolpana hennar. Hún lætur loks hatrið ráða, ræðst á þorp og drepur alla sem hún nær í. Kóngurinn verður að taka til sinna ráða, vill senda herinn á móti henni, en spyr fyrst gömlu konuna Lao Lao. Hún segir honum að senda son sinn litla til tígrismóðurinnar, um annað sé ekki að ræða. Sagan segir frá tígrisprinsinum, sem ólst upp inni í frumskógi áður en hann tekur við af föður sínum. Hrífandi saga um móðurtilfinngar. Myndskreytingar eru listaverk.

Chen Jiang Hong fæddist árið 1963 í stórri borg í Norður-Kína.
Hann er málari og myndskreytir. Hann stundaði nám við myndlistarháskóla Pekin og Parísar. Hann hefur búið og unnið í París síðan 1987.
Í sögum hans blandast fornar þjóðsögur, menning og saga Kína við tilfinningalíf og tilveruspurningar nútímabarna. Hann notar hefðbundna tækni - blekmálun, án undirbúningsskissu, á hríspappír eða silki - við nútímahönnun á bókum með myndskreytingu fyrir undirstöðu.

Fyrir börn á aldrinum 5-10 ára.
48 bls.
28 x 28 cm
Kom fyrst út á frönsku árið 2005.