Ég var svo hamingjusöm (3) eftir Rose Lagercrantz og Eva Eriksson
Regular price
1.950 kr
Nú er komið að síðasta skóladegi Dinnu í fyrsta bekk. Skólaslitin eru framundan og allir keppast við að skreyta skólastofuna. Allt í einu er bankað á dyrnar og Dinna er beðin að koma fram
á gang. Það hefur orðið slys ...
Ég var svo hamingjusöm … er þriðja bókin um Dinnu.
Hún er sjálfstætt framhald af bókunum: Hamingjustundir Dinnu og Hjartað mitt skoppar og skellihlær.
Bækur Rose Lagercrantz um Dinnu með myndum Evu Eriksson hafa verið þýddar á fjölda tungumála og þær hafa unnið til margvíslegra verðlauna.
Myndir og texti lýsa gleði og sorgum Dinnu á hrífandi og auðskilinn hátt. Bækurnar efla skilning ungra lesenda á mikilvægi þrautseigju og sannrar vináttu.
Þýðing: Guðrún Hannesdóttir
Kilja, 128 bls