Ókeypis sending ef pöntun er yfir 9,500 kr
Ókeypis sending ef pöntun er yfir 9,500 kr
Karfa 0
Lían eftir Chen Jiang Hong
Lían eftir Chen Jiang Hong
Lían eftir Chen Jiang Hong
Lían eftir Chen Jiang Hong

Lían eftir Chen Jiang Hong

Sale price 2.100 kr Regular price 2.900 kr

Ló er einbúi og fiskimaður. Heimili hans er djúnkan hans. Hann er dapur, fiskur er sjaldséður þetta árið. Dag einn biður fjörgömul kona hann að róa með sig yfir vatnið, í þakkarskyni gefur hún honum nokkur lótusfræ. Þessi fræ eru sérstök, þau eru tekin úr drekakjafti. Ló sáir þeim, og um leið kemur upp lótusakur á einni nótt. Inni á milli blaða eins blómsins birtist lítil stúlka. Hún heitir Lían. Hún er líka sérstök. Hún er með sérgáfur. Og vegna þeirra er hún í hættu.

Chen Jiang Hong fæddist árið 1963 í stórri borg í Norður-Kína.
Hann er málari og myndskreytir. Hann stundaði nám við myndlistarháskóla Pekin og Parísar. Hann hefur búið og unnið í París síðan 1987.
Í sögum hans blandast fornar þjóðsögur, menning og saga Kína við tilfinningalíf og tilveruspurningar nútímabarna. Hann notar hefðbundna tækni - blekmálun, án undirbúningsskissu, á hríspappír eða silki - við nútímahönnun á bókum með myndskreytingu fyrir undirstöðu.

Fyrir börn á aldrinum 5-10 ára.
40 bls.
28 x 28 cm
Kom fyrst út á frönsku árið 2004.